Byggingin er 8 íbúða staðbyggt fjölbýlishús, um 1385 m² að stærð.
Á 1. Hæð eru innbyggðar bílageymslur, sérgeymslur íbúða ásamt inntaksklefa og hjóla og vagnageymslum. Einnig er þar að finna 2. herbergja íbúð sem er sérhönnuð fyrir fatlaða. Á 2. hæð eru 4 íbúðir og á 3. hæðinni eru þrjár íbúðir þar sem einni íbúðinni tilheyra þaksvalir að hluta. Stigahús er með lyftu. Þak stigahúss er bogaþak.
Aðal burðarvirki byggingarinnar er úr járnbentri steinsteypu. Þak yfir lyftuhúsi er uppstólað og borið uppi af trjáviðum.
Gluggar eru hefðbundnir ísteyptir timburgluggar úr þurrkaðri furu.
Útveggir byggingarinnar eru sléttpússaðir. Steinveggir eru „off white“ og gluggar og hurðir eru granítgráir í RAL 7016.
Meðhönnuður: Björgvin Halldórsson byggingafræðingur.
Mansard er alhliða teiknistofa sem sérhæfir sig í þjónustu við byggingarverktaka, bæjarfélög, stofnanir og einstaklinga.
Mansard vinnur sýnar teikningar með Autodesk Revit þrívíddarforriti sem og Auto Cad teikniforriti.